Færsluflokkur: Bloggar

Tilkynningarskylda...

Ég gat bara ekki á mér setið að blogga um þessa frétt! Finnst þetta frekar spaugilegt!!LoL  Eins gott að maður tilkynni nágrönnunum ef maður ætlar að horfa á hryllingsmyndir í framtíðinni, rétt eins og maður gerði fyrir partýin hér í gamla daga... Bwahahaha!!Grin  Samt gott fyrir konugreyið að vita að nágrönnunum er ekki sama um hana!Smile
mbl.is Hjálparkall vegna hryllingsmyndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig kaffi? Latte, takk...

Sá þetta á bloggi skorrdals ( http://skorrdal.blog.is/blog/skorrdal/ ) og varð auðvitað að taka prófið... Er sjálfprófsfíkill... hehe.. Hef gaman af þessu...

Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Latte!
og samanstend af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?

 

 

"Latte!

Þú ert skapstór og íhaldsamur einstaklingur sem lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Undir vissum kringumstæðum leyfirðu þér að prófa nýjungar, en þó aðeins að vel athuguðu máli.

Þú samanstendur af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk. "


Hneyksli!! Kjaftshögg..

..já kýlum þessa stofnun á kjaftinn!!! Grrr... Ég verð svo reið þegar ég les um svona óþverra. Það versta er að þetta er ekki eina dæmið, þau eru svo mörg að ég gæti setið og pikkað endalaust.

Hvaða helv... úrelti hugsunarháttur er þetta? Skítalykt af þessu.

Stöndum nú upp og MÓTMÆLUM!!!!! Krefjumst bóta á þessu kerfi okkar. Fyrir öryrkja, aldraða, láglaunafólk, skólafólk, einstæða foreldra og barnafjölskyldur almennt! Fyrir alla þá sem halda þessu landi gangarndi og fá bara fret í nasir fyrir það.

Stjórnmálamenn og bankastjórar? Skammist ykkar!

Skrifum nú undir: http://www.petitiononline.com/lidsauki/petition.html


mbl.is Stórtapaði á að þiggja bætur eftir slys
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snjáldurmús...

Þegar ég var lítil kallaði mamma mig alltaf snjáldurmúsina sína. Þar sem mér finnast mýs nú bara sætar og hefur alltaf fundist var ég nokkuð ánægð með þetta viðurnefni sem hún gaf mér, sá fyrir mér e-a litla sæta mús.. Man enn eftir sjokkinu sem ég fékk þegar ég sá mynd af þessu dýri í fyrsta skipti! Mér fannst þetta hryllilega ljótt dýr!! Skildi ekkert í henni mömmu, fannst henni ég svona ófríð?Shocking (Neinei, ég tók þessu sko ekki svona hart.. Maður verður nú að fá smá skáldaleyfi til að dramatísera frásögnina!) Var að rifja þetta upp og ákvað að Gúgla dýrið. Svona líta þær út þessar elskur:

Snjáldurmús

   musaranho2    CryptotisParva

Verð að segja að þær eru ekki eins ljótar og mig minnti. Eiginlega bara sætar! Svo eru þær skyldar broddgöltum og fá bara plús í kladdann fyrir það því þeir eru svo mikil krútt.. Wink

Ef þið viljið lesa meira um snjáldrur getið þið prófað að kíkja hingað: http://www.visindavefur.hi.is/svar.asp?id=3958

 Tack og hej í bili.


Tímaþjófur!!

Nú settist ég fyrir framan skjáinn þriðja daginn í röð í þeim tilgangi að skrifa stórmerkilega færslu, meistaraverk blogganna, konfekt fyrir hugannHalo en fyrst ætlaði ég "bara aðeins" að skoða blogg hjá mér reyndari bloggurum.. "Bara aðeins" er stórhættulegt! Ég sat sem límd og skoðaði og las og las og skoðaði svo skipti klukkustundum... Það var eins og ég væri dáleidd.. Vissulega las ég margt skemmtilegt og áhugavert, kommenteraði þó lítið því ég var sko "bara aðeins" að líta á þessar færslur allar, tilgangurinn með setjast við skjáinn og fara inn í bloggheiminn var jú að skrifa mína eigin færslu. Sem ég svo gerði ekki. Og nú geri ég það ekki heldur því fyrst vildi ég koma þessu frá mér.

Kæru bloggarar! Ef þið skylduð nú ramba hingað inn á mitt litla svæði fyrir e-a slembilukku, gætuð þið svarað mér hvernig þið hafið tíma til að lesa og kommentera hjá öllum bloggvinunum, skrifa ykkar eigin flottu færslur OG lifað eðlilegu lífi utan tölvuheima?

Svar óskast, mig langar líka að geta lesið, kommenterað, skrifað OG lifað!


Allt er fertugum fært!

Ég ætlaði alltaf að verða rithöfundur og leikkona þegar ég yrði stór. Það er ennþá stefnan hjá mér, spurningin er bara: hvenær verð ég "stór"?

Þegar ég var tíu ára var ég viss um að þegar ég yrði tvítug yrði ég fullorðin. Svo varð ég tvítug en þessi fullorðinstilfinning lét e-ð bíða eftir sér. Svo þá hélt ég að ég hlyti að vera orðin fullorðin áratugi síðar. Núna er ég komin þangað, þrítug. Skil bara ekkert í því hvað þessar blessuðu "fullorðins"tilfinningar láta bíða eftir sér!Shocking 

Þegar mamma mín blessunin varð fertug fyrir 22 árum síðan fékk hún bók í afmælisgjöf sem bar heitið "Allt er fertugum fært" og ég man enn eftir þessari bók. Sem krakki á áttunda aldursári fannst mér þetta nú engin tíðindi, mamma var jú fertug og hún gat/kunni/vissi sko allt, en auðvitað var ágætt að vita að til væri bók sem staðfesti þetta fyrir mér.. (Reyndar hef ég aldrei actually LESIÐ þessa blessuðu bók, og skilst að þetta sé e-r grín-bók, but hey, það er aukaatriðiCool..) Þarna var ég semsagt, 7 ára og pollróleg yfir framtíðinni, því hvað sem öðru liði þá væri það að minnsta kosti öruggt að þegar ég yrði fertug væri ég fær í flestan sjó og með allt á hreinu.

Þannig að ég hlakka mikið til þessa komandi áratugar í lífi mínu, nú hlýt ég að fara að sjá ljósið og öðlast æðri skilning á öllum hlutum, því þegar öllu er á botninn hvolft: Allt er fertugum fært!!


Blessuð börnin..

..sem leyfa ekki foreldrum sínum að reyna að blogga...

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband